Rúna Vala...hin eina sanna, enjoy...  

Gestabókin



Eldri blogg:





sendu mér póst
fimmtudagur, apríl 05, 2007

Hálskirtlataka

Já, ég fór í hina langþráðu hálskirtlatöku í gær. Það sem fólk sagði við mig þegar það frétti að ég væri á leiðinni var: æjh, greyjið mitt!!! Og: þá máttu borða eins og þú vilt af frostpinnum!!!
Jájá... ég var frekar stressuð þegar ég kom inn í skurðstofuna en róaðist þó þegar ég uppgötvaði að ein hjúkkanna var mamma æskuvinar míns, hans Eyþórs. Hún er sallafín :) Það var settur æðaleggur í mig sem er ekki nál, heldur plast sem beygist með æðinni, þannig að það er ekkert vont. Þar í var sett næring og eitthvað kæruleysislyf eða eitthvað, allavega leið mér eins ogég væri drukkin. Svo kom svefnlyfið og þá lognaðist ég strax útaf. Þegar ég vaknaði, um klst. síðar, var ég með eitthvað svona uppi í mér svo að ég myndi ekki kyngja tungunni en það var hjúkka í nágrenninu svo að hún kippti því út um leið og hún sá að ég var vöknuð og lét mig hafa súrefnisgrímu. Ég dottaði af og til og gríman var fljótlega tekin af mér. Svo fékk ég frostpinna og mamma kom og sótti mig um 5 korterum eftir að ég vaknaði. Ég talaði svo að segja án óþæginda, sem flestir voru frekar hissa á. En þegar við mamma fórum í apótekiðtil að kaupa verkjalyf og bólgueyðandi, fór mig að svima og varð óglatt, sjálfsagt af svæfingunni. Með herkjum komumst við út í bíl og mér fór að líða betur á leiðinni. Þegar ég kom heim ver Gústi kominn úr vinnunni og gerði handa mér smoothie með banana og skyri og ísmolum og ríbena. Ég var allan daginn að drekka það... Annars gerði ég lítið annað en að sofa. En núna er ég frekar útsofin eins og er og líður bara eins og ég sé með slæma hálsbólgu. Ég sýp á smoothie af og til og sleiki frostpinna :) En ég vara ykkur samt við að hringja í mig, því ég forðast að tala eins og ég get. Sms er vinsælara þessa dagana.


skrifað af Runa Vala kl: 11:07

Comments: Skrifa ummæli
© Sigrún Vala